Fyrirlestur Rays Hilborns fjallar um
hvernig stuðla megi að auknum afla með því að efla fiskistofna í höfum heims.
Hann beinir í fyrirlestrinum sjónum að tilhneigingum í fiskistofnum heims og
hvar sé verið að efla þá og stuðla að sjálfbærni og hvar ekki. Hann fjallar þar
um tengsl fiskveiðistjórnunar og árangurs í sjávarútvegi og fer í stuttu máli
yfir niðurstöður nýlegra rannsókna á áhrif botnvörpuveiða á lífkerfi hafsins,
þörfina fyrir vernduð svæði til að styrkja líffræðilega fjölbreytni hafsins og
hlutfallsleg umhverfisáhrif fiskveiða miðað við aðrar uppsprettur dýrapróteins
og næringarefna.
Ray Hilborn er vísindamaður og félagi í
samtökunum American Fisheries Society, Washington State Academy of Sciences,
Royal Society of Canada og American Academy of Arts and Sciences en auk þess er
hann prófessor í Lagar- og fiskveiðivísindadeild Washington-háskóla og hefur gefið
út á þriðja hundrað jafningjarýndra vísindagreina og allmargar bækur. Hann er
sjávarlíffræðingur og fiskveiðivísindamaður og er vel þekktur fyrir störf sín
að friðun og umsjá náttúruauðlinda á sviði sjávarútvegs.
Hilborn heldur námskeið fyrir háskólanema
á bæði grunn- og framhaldsstigum í fæðusjálfbærni, friðun og megindlegri
stofnfræði. Meðal bóka hans má nefna „Overfishing: what everyone needs to know”
(„Ofveiðar, það sem allir þurfa að vita“ ásamt Ulrike Hilborn) árið 2012,
“Quantitative fisheries stock assessment” („Megindlegt mat á fiskistofnum“
ásamt Carl Walters árið 1992 og “The Ecological Detective: confronting models
with data” („Vistfræðispæjarinn, líkönum ögrað með talnagögnum“ ásamt Marc
Mangel) árið 1997. Hann hefur átt sæti í ritstjórnum margra tímarita, þar með
talið í sjö ár í rýniritstjórn Science Magazine. Hann hefur verið sæmdur
umhverfisverðlaunum Volvo, heiðursverðlaunum American Fisheries Societies,
verðlaunum The Ecological Society of America fyrir vísindastörf á sviði sjálfbærni
og vísindaverðlaun Alþjóðlegu fiskveiðisamtakanna.
Nánari upplýsingar má finna á vefsetri WSC.