Wise er fastur sýnandi á Íslensku sjávarútvegssýningunni
og býður fram kerfi byggð á grunni tækni frá Microsoft sem sérsniðin eru að
þörfum bæði útgerðar og fiskvinnslu.
„Það er mér heiður að afhenda Wise
verðlaunin sem Samstarfsaðili ársins á Íslandi 2017,“ sagði Ron Huddleston, aðstoðarforstjóri
One Commercial Partner hjá Microsoft.
„Wise hefur fært sameiginlegum
viðskiptavinum okkar framúrskarandi lausnir og þjónustu og er afbragðsgott dæmi
um þá yfirburði sem við sjáum hjá bestu samstarfsaðilum okkar.“
Wise var valið úr hópi 2600
samstarfsfyrirtækja í 115 löndum en verðlaunin voru veitt í ýmsum flokkum. Wise
fékk sérstakt hrós fyrir bæði nýsköpun sína og víðtæka sérfræðiþekkingu sem
skilar lausnum á heimsvísu og samstarf sitt við Microsoft Iceland.
„Okkur er það mikill heiður að þiggja
þessi verðlaun frá Microsoft,“ sagði Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri sölu- og
markaðssviðs Wise.
„Afburðagóður starfsmannahópur er
lykillinn að velgengni og vexti Wise. Fyrirtækið veitir ráðgjöf á heimsvísu um
hvernig þróa skuli og taka í notkun bæði stöðluð og sérsmíðuð kerfi fyrir
umsýslu launa, bankastarfsemi, bókhalds, framleiðslustjórnunar sjávarfangs og
kerfi fyrir héraðs- og sveitarstjórnir,“ hélt hann áfram. „Við leggjum
aðaláherslu á Dynamics NAV og getum boðið sérsniðnar lausnir fyrir nær hvaða
iðngrein sem er.“
Jón Heiðar Pálsson bætti við að
fyrirtækið muni eins og ávallt kynna vörur sínar og þjónustu á íslensku
sjávarútvegssýningunni í ár.
„Sú sýning er ein sú allra mikilvægasta
sem Wise tekur þátt í og hún færir okkur einstakt tækifæri til að hitta
viðskiptavini okkar og ræða kröfur þeirra við óformlegar aðstæður,“ sagði hann
að lokum.