Sólbergi gefið nafn á Siglufirði

Nýja
Sólbergið sem smíðað var í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi er
fullkomnasta fiskiskip sinnar tegundar í íslenska flotanum. Það kemur í stað
tveggja eldri togara, Mánabergs sem smíðað var á Spáni árið 1972 og
Sigurbjargar sem smíðuð var á Íslandi árið 1987.

Sólberg
er 79,80 metra langt og 15,4 metra breitt og hönnin er Skipsteknisk ST-116 XL.
Rúm er fyrir 38 menn í áhöfn auk sjúkraklefa.

Vinnsluþilfarið
er með búnaði frá Optimar og þar er m.a. tölvustýrð vatnsskurðarvél frá Völku.
Tækjabúnaður er bæði til flakavinnslu og heilfrystingar. Framleiðslugetan á
sólarhring er 75 tonn með tveimur lóðréttum plötufrystum og lausfrystibúnaði.
Fiskúrgangur er unninn í fiskimjölsverksmiðju frá Héðni sem er um borð.

Tersan
skipasmíðastöðin hefur frá árinu 2013 afhent þrettán ný fiskiskip, þar af tíu
frystitogara. Nú eru tveir frystitogarar til viðbótar í smíðum, hannaðir af
Skipstekninsk, og verða þeir afhentir á þessu ári.

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place