Armon – nýtt andlit á Íslensku sjávarútvegssýningunni

„Á þessu ári tökum við þátt í Íslensku
sjávarútvegssýningunni einkum vegna aukins áhuga á nýsmíðum fiskiskipa af hálfu
útgerða á Íslandi og annars staðar við Norður-Atlantshaf,“ segir Ricardo Garcia
sölustjóri skipasmíðastöðvarinnar. „Nú þegar eldsneytisverð er orðið stöðugra
virðist vera vaxandi áhugi á að gera samninga um smíði nýrra skipa.“

Astilleros Armon, sem er í hópi fremstu
skipasmíðastöðva á Spáni, rekur fjórar smíða- og viðgerðarstöðvar á
Norður-Spáni. Stöðin hefur áratuga reynslu af smíði skipa af fjölbreyttasta
tagi, frá tiltölulega litlum bátum til stórra togara og túnfisknótaskipa, auk
flókinna vinnsluskipa og tæknivæddra rannsóknaskipa.

Nýjasta nýsmíði stöðvarinnar var frystitogarinn
Ramoen sem Rolls-Royce hannaði og afhentur var norskri útgerð í lok síðasta
árs, en skipin veiðir botnfisk í Barentshafi. Um borð er fyrsta
vatnsskurðarvélin frá Völku sem komið er fyrir um borð í skipi. Ramoen er þannig
frumkvöðull í því að  gera framleiðslu
fiskafurða á sjó fjölbreyttari.

„Við komum úr sjávarútveginum og
skipasmíðastöðin okkar hefur smíðað meira en 550 fiskiskip á fjórum áratugum,“
sagði Ricardo Garcia. „Við höfum einnig mikla reynslu af smíði aðstoðarskipa
fyrir olíuiðnaðinn á hafi úti svo við erum vanir því að smíða eftir norrænum
stöðlum.“

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place