Íslenski markaðurinn

Íslenskur sjávarútvegur í fararbroddi hvað
nýtingu tækninýjunga varðar, allt frá leiðsögukerfum og fiskileit til
veiðarfæra og búnaðar.

Útflutningur sjávarfangs árið 2013

Fiskveiðar í atvinnuskyni hafa undanfarin þrjú ár orðið stöðugt mikilvægari starfsgrein, ekki síst í framhaldi af efnahagskeppunni. Útflutningsverðmæti fisks og útvegstengdra afurða jókst um 99 milljarða króna og varð nær 272.5 milljarðar eða heil 44.6% af heildarverðmæti alls útflutnings.

 Endurnýjun íslenska fiskveiðiflotans miðar vel
áfram með áherslu á orkusparandi tækni, nýja kynslóð vinnslubúnaðar um borð og
geymslu án íss. Uppsjávarveiðiflotinn hefur lokið við að endurnýja skipakost
sinn en útgerðirnar Ísfélagið, Síldarvinnslan og HB Grandi hafa fengið ný
veiðiskip í hendur.

Nú stendur yfir endurnýjun í flota
botnveiðiskipa en nýju skipin á að afhenda í lok árs 2017. Samherji, FISK
Seafood, HB Grandi, Rammi, Gunnvör og VSV fá öll í hendur ný veiðiskip, auk
þess sem búist er við því að ný skip verði afhent dótturfyrirtækjum Samherja
erlendis.

Heildarveiði íslenska flotans á árinu
2015 var 1.319 tonn en það er 243.000 tonnum meira en árið 2014.  Heildarverðmæti afla varð 151 milljarður
króna og jókst um 15% frá fyrra ári.

Útflutningur
fiskmetis 2015

Ekki
hefur dregið úr mikilvægi sjávarútvegs og útflutningsverðmæti fisks og
fiskafurða varð 267 milljarðar króna eða alls 42,3% heildarútflutnings Íslands.

 

Milljarðar króna

Hundraðstala

Heildarafli

267

42,3%

Til meginlands Evrópu

198

75,0%

Mikilvægustu viðskiptalöndin

 

Bretland – 48

Spánn – 23

Frakkland – 23

Noregur – 20

Bandaríkin – 18

Þýskaland – 17

Nígería – 13

Holland – 11

Rússland – 10

Japan – 9

Samantekt á ensku

Á árinu 2015 voru fluttar út sjávarafurðir
fyrir nær 267 milljarða íslenskra króna sem var samdráttur um 6% miðað við fyrra ár
en vegna  styrkingar
íslensku krónunnar sýnir þessi upphæð heildarupphæð útflutnings og
breytinga á vörubirgðum. Heildarútflutningur ársins 2015 var 632.000 tonn

Frystar afurðir skiluðu helmingi alls
verðmætis fyrir sölu sjávarafurða. Af einstökum útflutningsflokkum skilaði frystur
þorskur mestu eða 35,6 millörðum króna og verðmæti ísaðs þorsks varð í öðru
sæti eða 34,4 milljarðar króna. Um 75% íslenskra sjávarafurða fóru til Evrópulanda,
8,6% til Asíu og 8% til Norður-Ameríku.

(Hagstofa
Íslands)

All news
22-24 September

Join the conversation at the conference

Book your place