„Fyrsta HPP-kerfið var sett upp um borð í Sólbergi ÓF-1, togara Ramma, sem hóf veiðar árið 2017,“ segir Ragnar Sverrisson, framkvæmdastjóri Héðins.
Verksmiðjutogararnir Ilivileq, Berlin, Kirkella og Emeraude, allir smíðaðir á síðustu árum, eru einnig með HPP-kerfi um borð, og síðan er búnaður í notkun á landi við vinnslu á afskurði af lögum í Færeyjum allt yfir í vinnslu á skelfiskúrgangi í Bandaríkjunum. Nú hefur Héðinn einnig selt HPP-kerfi til norsku fiskvinnslunnar Grøndvedt Nutri, þar sem framleiðslan er nýfarin af stað.
„Þessi uppsetning er klárlega viðurkenning fyrir Héðin,“ segir hann.
Fyrir utan eigin verkfræðigetu hefur Héðinn lengi átt í samstarfi við Kongsberg Maritime sem fulltrúi þess fyrirtækis á Íslandi, allt frá því það gekk undir nafninu Rolls Royce. Héðinn hefur verið með umboð fyrir allt það sem Kongsberg hefur upp á að bjóða, allt frá skipahönnun yfir í vindur og ýmis konar skipaþjónustu.
Héðinn hefur einnig tekið þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni IceFish frá upphafi, og stefnir á að auka viðveru sína þetta árið.
„Þessi sýning hefur alltaf reynst okkur vel,“ segir Ragnar Sverrisson.
„HPP-kerfin okkar til framleiðslu á mjöli og lýsi hafa farið í gegnum langt prófunar- og matsferli, og nú ætlum við að sýna þau á Íslensku sjávarútvegssýningunni með stærri bás en nokkru sinni. Við stefnum á að verða stjarna sýningarinnar árið 2021,“ segir hann.
Ef þú hefur áhuga á að sýna, styrkja, koma sem gestur eða flytja erindi á IceFish 2021, hringdu þá í +44 01329 825 335 eða sendu tölvupóst á info@icefish.is.
Sölumenn á Íslandi: Birgir Þór Jósafatsson S: +354 896 2277 birgir@icefish.is eða Bjarni Þór Jónsson GSM: +354 896 6363 bjarni@icefish.is