Það er sönn ánægja að tilkynna að Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Protis, heldur erindi á ráðstefnunni IceFish Conference, Fiskúrgangur skilar hagnaði (Fish Waste for Profit).

Ráðstefnan fer fram 14. september næst komandi samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni 2017, IceFish17, og mun fjalla um alla virðiskeðjuna í nýtingu fiskúrgangs frá upphafi til enda. Markmið ráðstefnunnar er að upplýsa alþjóðlega sérfræðinga í sjávarútvegi um þau tækifæri sem felast í vinnslu fiskúrgangs.

Veigamikill hluti sjávarfangs fer forgörðum við vinnslu og fyrirtækin sem kynna starfsemi sína á IceFish-ráðstefnunni eru fulltrúar frumkvöðla sem aukið hafa hagnað sinn með því að nýta hráefni sem annars færi til spillis.

Hólmfríður Sveinsdóttir er með meistaragráðu í næringarfræði og doktorsgráður frá matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Hún hefur verið í fararbroddi í rannsóknum á fiskprótínum um árabil. Það verður ákaflega spennandi að heyra hvernig fyrirtækið Protis, sem stofnað var árið 2015, þróar vörur úr gæðahráefni sem aflað er og unnið með sjálfbærum hætti, í þágu viðskiptavina sem eru á höttunum eftir fyrsta flokks náttúrulegri heilsuvöru.

Protis er íslenskt líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski (Gadus morhua), svokölluðu IceProtein®.

Fiskprótínið er unnið með vatnsrofstækni, þar sem prótínin eru meðhöndluð með vatni og ensímum og í framhaldinu síuð þannig að próteinið samanstendur einungis af smáum lífvirkum peptíðum.

Skráðu þig hið fyrsta á Icelandic Fisheries Conference 2017 til að kynnast Protis betur og vegferð fyrirtækisins til framleiðslu verðmætrar neytendavöru fyrir innlendan og erlendan markað. Protis er einungis eitt þeirra frumkvöðlafyrirtækja sem kynna mun starfsemi sína á ráðstefnunni Fiskúrgangur skilar hagnaði (Fish Waste for Profit), þannig að fylgstu með til að fá frekari upplýsingar og fréttir.

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á jgwynn@mercatormedia.com eða hringja í síma (0044)1329825335.