Sjávarútvegsráðstefnan The Icelandic Fisheries Conference, „Fiskúrgangur skilar hagnaði“ (Fish Waste for Profit), fer fram 14. september 2017 samhliða Íslensku sjávarútvegssýningunni, IceFish17, sem nú er haldin í tólfta skipti.

Dagskrá hátíðarinnar er stútfull af fyrirlestrum frá íslenskum frumherjum í nýtingu fiskúrgangs, þar á meðal fyrirlesurum úr tísku- og fegurðariðnaðinum. Fulltrúi íslenska snyrtivörufyrirtækisins Feel Iceland er á meðal fyrirlesara, en það fyrirtæki sérhæfir sig í þróun og sölu einstakra fæðubótaefna og húðvara sem vinna í sameiningu „frá utanverðu og inn og frá innanverðu og út”. Tvímælalaust frábær viðbót við dagskrána.
Þegar frumkvöðlarnir hjá Feel Iceland veittu því athygli hversum miklum fiskúrgangi var fargað ákváðu þeir að stofna fyrirtæki til að skapa virðisauka úr hinum holla og dýrmæta fiski sem Íslendingar eiga. Stofnandinn, Hrönn Margrét Magnúsdóttir, mun kynna á ráðstefnunni þau skref sem Feel Iceland hefur tekið frá upphafi við þróun vörulínunnar sem fyrirtækið hefur að bjóða.
Tryggðu þér 15% „fyrstir-koma-fyrstir-fá” afsláttinn
Bókaðu núna til að fá betri innsýn í hvernig saga Feel Iceland þróaðist í sigurgöngu í iðnaðinum sem helgaður er fullvinnslu fiskúrgangs. Afsláttartímabilinu lýkur 28. júlí. Notaðu kóðann *early* þegar þú ferð úr körfunni.
Atlantic Leather er annað íslenskt fyrirtæki sem hagnýtir sér fiskúrgang við framleiðslu munaðarvöru. Fyrirtækið sútar fiskroð til að búa til nýstárlegt leður sem selt er til framleiðslu fatnaðar, skóbúnaðar og fylgihluta, ásamt því að framleiða hefðbundnari leðurvörur.
Fyrirtækið framleiðir leðrið úr fjórum mismunandi fisktegundum; laxi, karfa, steinbít og þorski, hver og ein vörulína með einstöku yfirbragði og áferð, fáanlegar í fjölbreyttum litum og með mismunandi frágangi. Fiskroð er alls ekki nýtt hráefni í fataiðnaði, það á sér langa hefð og öldum saman gerðu Íslendingar sé skó úr steinbítsroði.
Sjávarútvegsráðstefnan The Icelandic Fisheries Conference hefur það markmið að bjóða upp troðfulla dagskrá skipaða forystufólki í greininni. Atlantic Leather hefur verið leiðandi frumkvöðull í þróun fiskroðs, það er eina fyrirtækið í heiminum sem framleiðir leður úr steinbítsroði og eina sútunarstöð heimsins sem hefur tekist að búa til leður úr laxaroði sem þolir þvott.
Ef þú vilt tækifæri til að hlusta á þessa frumkvöðla og leiðtoga sem eru drifkraftarnir í greininni, ásamt því að beita sér staðfastlega fyrir sjálfbærni, skaltu fara á ráðstefnuna. Þú getur ennþá fengið 15% „fyrstir-koma-fyrstir-fá” afsláttinn þannig að það er ekki eftir neinu að bíða – bókaðu núna.
Aðgangur að ráðstefnunni, þar á meðal hádegismatur og hressing meðan á ráðstefnunni stendur, kostar með afslættinum aðeins 27.400 krónur til 28. júlí. Mundu eftir að slá inn afsláttarkóðann *early* í körfunni.
Ef þú vilt bóka símleiðis ena vantar frekari upplýsingar um ráðstefnuna skaltu hafa samband við skipulagsteymið í síma (0044) 1329 825335 eða í netfangið info@icefish.is.