Ráðstefna Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, Fish Waste for Profit, býður upp á pallborðsumræður í seinustu málstofu þann 14. september 2017.

Þessi einstaka málstofa samanstendur af framámönnum í íslenskum sjávarútvegi á sviði endurnýtingar fiskúrgangs og mun fjalla um ýmis málefni sem lúta að mikilvægi fjárfestinga í greininni.

Á meðal þátttakenda má nefna:

- Dr. Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans.

- Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis.

- Brynjólfur Bjarnason, fyrrum forstjóri Granda og fjárfestir hjá Marinvest.

- Hrönn Margrét Magnúsdóttir, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Feel Iceland.

Smelltu hér til að sjá dagskránna

Það er áætlað að 43% af öllum fiski og skelfiski sem breskar útgerðir veiða fari til manneldis á mismunandi stigum fiskvinnslunnar. Þetta endurspeglar verulega hagnaðarvon í hráefni sem til verður við endurnýtingu og fullvinnslu fiskúrgangs sem annars færi forgörðum.

Ertu að hagnýta til fullnustu vöruna sem þú framleiðir? Ef þú vilt öðlast frekari þekkingu á þeim tækifærum sem í boði eru á sviði fjárfestinga í endurvinnslu í sjávarútvegi, og hinum ýmsu aðferðum til að auka tekjur þínar í endur- og fullvinnsluiðnaðinum, skaltu skrá þig á íslensku sjávarútvegsráðstefnuna Fish Waste for Profit.

Þú hefur ennþá ráðrúm til að tryggja þér pláss á ráðstefnunni. Heimsóttu heimasíðuna www.icefishconference.com/e-commerce til að panta í pundum eða evrum. Til að greiða í íslenskum krónum skaltu hafa samband við skipuleggjendur ráðstefnunnar í síma (0044) 1329 825335 eða sendu tölvupóst á netfangið info@icefish.is.