Íslenska fyrirtækið Codland mun eiga fulltrúa sína á meðal hinna mörgu fyrirlesara sem búið er að staðfesta á ráðstefnunni „Fiskúrgangur skilar hagnaði“ (Fish Waste for Profit).

Codland nýtir sér líftækni til að skapa arðvænlegar nýjar vörur úr vannýttum úrgangi frá sjávarútvegsfyrirtækjum. Fyrirtækið starfar út frá þeirri frumforsendu að þar sem afli er af skornum skammti sé það skylda þess að nýta hvert kíló af sjávarfangi til fullnustu.

Tómas Eiríksson, framkvæmdastjóri Codland, mun halda opnunarerindi ráðstefnunnar og kynna þátttakendum í krafti þekkingar sinnar á endurnýtingu fiskúrgangs þá valkosti sem þeim stendur til boða í greininni. Tómas Þór er með Global Executive MBA próf frá EADA viðskiptaháskólanum í Barcelona og HHL Leipzig, og hefur yfir þrettán ára reynslu af fjármálamörkuðum, fjármálastjórnun fyrirtækja og fjármálaráðgjöf

Davíð Tómas Davíðsson, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Codland, mun einnig halda erindi á ráðstefnunni í málstofu sem nefnist Frá upphafi og hálfa leið – stórvinnsla fiskúrgangs (Bottom to middle - Large scale processing of fish waste). Davíð er með B.Sc. gráðu í líffræði og sjávarútvegsfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í matvælafræði frá NMBU-háskólanum (Norges miljø- og biovitenskapelige universitet) í Ås í Noregi. Davíð mun í fyrirlestri sínum fara í saumana á starfsemi Codland og veita ítarlega innsýn í framleiðsluvörur fyrirtækisins og hvernig nýta má þær til almenningsnota.

Ráðstefnan fer fram 14. september nk. í Smáranum, Kópavogi, og nýtur stuðnings Íslenska sjávarklasans.

Ef þig vantar frekari upplýsingar um ráðstefnuna eða viltu taka þátt, flytja erindi eða styrkja, hikaðu ekki við að hafa samband við skipulagsteymið í síma (0044) 1329 825335 eða sendu á tölvupóstfangið info@icefish.is.