NAVIS ehf er Verkfræði-og ráðgjafarfyrirtæki sem sinnir fyrst og fremst þjónustu sem tengist skipum, skipasmíðastöðvum, útgerðum, fiskvinnslufyrirtækjum og skyldum rekstri. NAVIS hefur annast nýhönnun og breytingar á flestum gerðum fiskiskipa s.s. togurum, nóta-og flotvörpuskipum, frysti-og fullvinnsluskipum og línu-og handfærabátum, en einnig dráttarbátum, mælingabátum, kaupskipum, ferjum og farþegaskipum, breytinga og nýhönnunar á vinnslulínum, auk annarra verkefna á sérsviðum í skipatækni og útgerð. Fyrirtækið hefur aðkomu að tjónaskoðunum og matsgerðum af ýmsu tagi, fyrir innlend og alþjóðleg tryggingafélög og skipafélög og að flestu á sviði skipa, sjávarútvegs og flutningastarfsemi. Hjá NAVIS starfa fjölhæfir fagmenn sem mynda sterka heild á sviði sjávarútvegs og skipasmíða, búa yfir mikilli reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu í faginu sem þeir hafa öðlast við nám og störf bæði hérlendis og víða erlendis. NAVIS er meðlimur í sjávarklasasamstarfinu „Íslenski Sjávarklasinn“ (Icelandic Ocean Cluster) og hefur aðsetur í Húsi Sjávarklasans að Grandagarði 16, 101 Reykjavík.
Margmiðlunargallerí
Heimilisfang:
Hús Sjávarklasans Grandagaroi 16
Reykjavík
101
Iceland
Vefsíða:
www.navis.is