{"id":8814,"date":"2024-08-02T10:30:00","date_gmt":"2024-08-02T09:30:00","guid":{"rendered":"https:\/\/worldfishing.nfdtesting.uk\/icefish-conference\/2024\/08\/02\/kanadisk-sendinefnd-kannar-ny-taekifaeri\/"},"modified":"2026-08-27T00:11:22","modified_gmt":"2026-08-26T23:11:22","slug":"kanadisk-sendinefnd-kannar-ny-taekifaeri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/news\/news-icefish-is\/kanadisk-sendinefnd-kannar-ny-taekifaeri\/","title":{"rendered":"Kanad\u00edsk sendinefnd kannar n\u00fd t\u00e6kif\u00e6ri"},"content":{"rendered":"<p>\u00dear \u00e1 me\u00f0al ver\u00f0ur vi\u00f0skiptasendinefnd fr\u00e1 nor\u00f0urhluta Kanada, skipu\u00f0 fulltr\u00faum fr\u00e1 fimm af sj\u00f6 a\u00f0ildarfyrirt\u00e6kjum samtakanna Inuit Development Corporation Association (IDCA).&nbsp;Fyrirt\u00e6kin fimm eru Qikiqtaaluk Corporation, Sakku Investments Corporation, Makivvik, Nunatsiavut Group of Companies og Nunasi Corporation. \u00cd sameiningu mynda \u00feau sv\u00e6\u00f0isbundi\u00f0 eignarhaldsf\u00e9lag sem \u00e1 og st\u00fdrir margv\u00edslegum fj\u00e1rfestingum sem hafa miki\u00f0 v\u00e6gi fyrir hagkerfi\u00f0 \u00ed nor\u00f0urhluta Kanada. \u00dear \u00e1 me\u00f0al \u00e1 svi\u00f0i byggingaframkv\u00e6mda, flutninga, varnarm\u00e1la og sj\u00e1var\u00fatvegs.<\/p>\n<p>A\u00f0ildarfyrirt\u00e6ki IDCA hafa einnig umbo\u00f0 til a\u00f0 efla efnhagslega velfer\u00f0 frumbyggja \u00ed Nunangat, heimalendum in\u00fat\u00edta \u00ed Kanada, me\u00f0 \u00fer\u00f3unarverkefnum \u00ed vi\u00f0skiptum sem samr\u00e6mast samf\u00e9lagslegum gildum in\u00fa\u00edta og n\u00fdta a\u00f0 auki sta\u00f0bundna \u00feekkingu, reynslu og au\u00f0lindir \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. \u00cd sendinefndinni ver\u00f0a einnig fulltr\u00faar \u00feriggja orkufyrirt\u00e6kja \u00ed eigu in\u00fa\u00edta, auk \u00e1\u00f0urnefndra fulltr\u00faa a\u00f0ildarfyrirt\u00e6kja IDCA.<\/p>\n<p><strong>Vaxandi \u00e1hugi og samstarf<\/strong><strong><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;\u201eVi\u00f0 \u00cdslendingar sj\u00e1um vaxandi \u00e1hugi \u00e1 aukinni stj\u00f3rn \u00e1 fiskvei\u00f0iau\u00f0lindum frumbyggja og samf\u00e9laga \u00ed nor\u00f0urhluta Kanad,\u201c segir Hlynur Gu\u00f0j\u00f3nsson, sendiherra \u00cdslands \u00ed Kanada, \u00ed samtali vi\u00f0 IceFish. \u201eInnifali\u00f0 er raunverulegur \u00e1hugi \u00e1 fiskiranns\u00f3knum og gagnas\u00f6fnun me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 tryggja sj\u00e1lfb\u00e6rni au\u00f0linda sj\u00e1var og greina n\u00fdjar tegundir til sta\u00f0bundinnar neyslu og fyrir vi\u00f0skiptamarka\u00f0i.\u201c<\/p>\n<p>Hlynur kve\u00f0st l\u00edka skynja vaxandi \u00e1huga \u00e1 fulln\u00fdtingu fiskvei\u00f0iau\u00f0lindarinnar, \u00e1 sama h\u00e1tt og t\u00ed\u00f0kast h\u00e9rlendis. \u201eEn \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur au\u00f0vita\u00f0 segjast a\u00f0 frumbyggjar Kandada hafa stunda\u00f0 sl\u00edkar vei\u00f0ar og n\u00fdtingu fr\u00e1 \u00f6r\u00f3fi alda. Vi\u00f0 erum l\u00edka a\u00f0 upplifa vaxandi fj\u00e1rfestingar \u00ed n\u00fdjum vinnslub\u00fana\u00f0i og n\u00fat\u00edmav\u00e6\u00f0ingu skipa, \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0skiptamarka\u00f0ir \u00ed Kanada eru a\u00f0 opnast fyrir n\u00fdjum samstarfsa\u00f0ilum erlendis fr\u00e1, til d\u00e6mis vi\u00f0 fj\u00e1rm\u00f6gnun, s\u00f6lu og marka\u00f0ssetningu.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>N\u00fdr innbl\u00e1stur<\/strong><strong><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;\u00de\u00e6r \u00e1herslur sem greina m\u00e1 hj\u00e1 sendinefnd IDCA \u00e1 IceFish \u00ed september, \u00fe.e. sj\u00e1var\u00fatvegur, orkum\u00e1l og fer\u00f0a\u00fej\u00f3nusta, endurspegla \u00feau svi\u00f0 vi\u00f0skipta sem \u00edslensk fyrirt\u00e6ki og stofnanir hafa n\u00e1\u00f0 traustri f\u00f3tfestu \u00e1 seinustu \u00e1ratugi. \u00cdslendingar, l\u00edtil sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 nor\u00f0urhjara, hafa haft tilt\u00f6lulega f\u00e1 \u00farr\u00e6\u00f0i \u00f6nnur en a\u00f0 r\u00e6kta fyrirt\u00e6ki \u00e1 \u00feeim afmarka\u00f0a vettvangi en gert \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti a\u00f0 \u00feeir hafa n\u00e1\u00f0 a\u00f0 dafna vel \u00ed n\u00famt\u00edmavi\u00f0skiptum. \u00der\u00e1tt fyrir b\u00e6\u00f0i f\u00e1menni og landfr\u00e6\u00f0ilegar \u00e1skoranir hafi \u00cdslendingar n\u00e1\u00f0 \u00e1kaflega g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri \u00ed efnahagsm\u00e1lum, sem veitir fyrirt\u00e6kjum og samf\u00e9l\u00f6gum \u00ed nor\u00f0urhluta Kanada mikinn innbl\u00e1stur.<\/p>\n<p>IDCA-samt\u00f6kin telja a\u00f0 a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6g \u00feess standi a\u00f0 m\u00f6rgu leyti frammi fyrir keiml\u00edkum \u00e1skorunum \u00ed vi\u00f0skiptum og \u00cdslendingar hafa gert \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina, \u00ed vi\u00f0leitni sinni til a\u00f0 sty\u00f0ja umr\u00e6dd sv\u00e6\u00f0i \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0 til a\u00f0 ver\u00f0a efnahagslega sj\u00e1lfbjarga og r\u00e6kta fj\u00f6lbreyttari atvinnuvegi \u00fear. \u00dev\u00ed geti a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6gin s\u00f3tt margv\u00edslega \u00feekkingu til \u00cdslendinga.<\/p>\n<p>\u201e\u00cdslendingar skara fram \u00far \u00ed m\u00f6rgum atvinnugreinum sem eru l\u00edka mikilv\u00e6gar fyrir nor\u00f0urhluta Kanada. \u00deess vegna vonumst vi\u00f0 til a\u00f0 heims\u00f3knin \u00ed september nk. geri okkur kleift a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast betur um \u00fe\u00e6r lei\u00f0ir sem \u00cdslendingar hafa fari\u00f0 til a\u00f0 skara fram \u00far \u00e1 mikilv\u00e6gum m\u00f6rku\u00f0um,\u201c segja forsvarsmenn IDCA. \u00deeir hafa t.d. \u00e1huga \u00e1 finna n\u00fdjar a\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 h\u00e1marka ver\u00f0m\u00e6ti \u00ed sj\u00e1var\u00fatvegi, svo sem me\u00f0 aukinni vinnslu \u00e1 fisk\u00fargangi til a\u00f0 breyta honum \u00ed vir\u00f0isaukandi afur\u00f0ir.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Norr\u00e6nar lausnir \u00e1 norr\u00e6num vandam\u00e1lum <\/strong><strong><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;Fulltr\u00faar IDCA \u00far orkugeirandum vonast einnig til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast um t\u00e6kni sem hj\u00e1lpa\u00f0 getur nor\u00f0urhluta Kanada til a\u00f0 framlei\u00f0a sj\u00e1lfb\u00e6ra og hagkv\u00e6ma orku fyrir samf\u00e9l\u00f6gin og fyrirt\u00e6kin sem \u00fear eru a\u00f0 finna. Ekki s\u00edst er \u00fea\u00f0 br\u00fdnt \u00ed lj\u00f3si mikils orkukostna\u00f0ar \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu og \u00feess hversu br\u00fdnt er a\u00f0 draga \u00far kolefnislosun samfara orkuvinnslu.<\/p>\n<p>\u201e\u00cdslendingar hafa \u00fer\u00f3a\u00f0 norr\u00e6nar lausnir \u00e1 norr\u00e6num vandam\u00e1lum,\u201c segja forsvarsmenn IDCA, \u201eog \u00fev\u00ed viljum vi\u00f0 eiga innihaldsr\u00edkar samr\u00e6\u00f0ur vi\u00f0 hagsmunaa\u00f0ila \u00e1 \u00cdslandi um \u00fe\u00e6r lausnir, en einnig leggja af m\u00f6rkum eigin reynslu og hugmyndir \u00ed komandi vi\u00f0r\u00e6\u00f0um.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;Hlynur Gu\u00f0j\u00f3nsson sendiherra kve\u00f0st l\u00edta \u00e1 \u00feessa heims\u00f3kn sendinefndarinnar sem d\u00fdrm\u00e6tt t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 f\u00e6ra samskipti \u00cdslendinga vi\u00f0 nyrsta og austasta hluta Kanada \u00e1 n\u00e6sta stig ef svo m\u00e1 segja, til hagsb\u00f3ta fyrir b\u00e6\u00f0i \u00edslensk fyrirt\u00e6ki og fyrirt\u00e6ki \u00ed eigu frumbyggja \u00fear \u00ed landi. \u201eVi\u00f0 vonumst til a\u00f0 fer\u00f0in lei\u00f0i til aukin samstarfs \u00cdslendinga og in\u00fa\u00edta \u00ed t\u00e6kni, fj\u00e1rm\u00e1la\u00fej\u00f3nustu, v\u00edsindaranns\u00f3knum, fiskvei\u00f0istj\u00f3rnun og sam\u00fe\u00e6ttingu s\u00f6lu- og marka\u00f0skerfa, svo eitthva\u00f0 s\u00e9 nefnt,\u201c segir Hlynur.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 eygjum l\u00edka mikla m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 mi\u00f0la s\u00e9rfr\u00e6\u00f0i\u00feekkingu \u00cdslendinga var\u00f0andi fulln\u00fdtingu sj\u00e1varafur\u00f0a. \u00de\u00f3 svo a\u00f0 \u00edslensk fyrirt\u00e6ki, s\u00e9rstaklega \u00ed l\u00edft\u00e6kni og vinnslu, hafi veri\u00f0 lei\u00f0andi \u00ed n\u00fat\u00edmanum \u00ed fulln\u00fdtingu sj\u00e1varfangs, geta \u00cdslendingar v\u00e6ntanlega l\u00e6rt margt af \u00feeim a\u00f0fer\u00f0um sem frumbyggjar Kanada hafa beitt \u00f3ralengi til a\u00f0 n\u00fdta til fulls hverja einustu skepnu sem h\u00e6gt er a\u00f0 vei\u00f0a \u00e1 landi og sj\u00f3. Vi\u00f0 l\u00edtum \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feessa heims\u00f3kn IDCA-samtakanna sem upphafi\u00f0 a\u00f0 miklu d\u00fdpra og v\u00ed\u00f0t\u00e6kara samstarfi \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Samskiptin efld og endurn\u00fdju\u00f0<\/strong><strong><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;Hlynur minnir einnig \u00e1 a\u00f0 lengi vel hefur gildur strengur legi\u00f0 \u00e1 milli \u00cdslands og Kanada og bendir \u00e1 \u00ed \u00fev\u00ed sambandi a\u00f0 \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri ver\u00f0ur haldi\u00f0 upp \u00e1 150 \u00e1ra afm\u00e6li flutninga fj\u00f6lmargra \u00cdslendinga til Kanada, Vesturfaranna svok\u00f6llu\u00f0u. \u00cd raun og veru s\u00e9u hvergi fleiri af \u00edslensku \u00e6tterni en \u00ed Kanada, fyrir utan \u00cdsland au\u00f0vita\u00f0. \u00de\u00e1 hafi formleg dipl\u00f3mat\u00edsk samskipti landanna vara\u00f0 \u00ed n\u00e6r \u00e1ttat\u00edu \u00e1r og veri\u00f0 fars\u00e6l. Fr\u00edverslunarsamningur EFTA og Kanada fr\u00e1 2009 hafi l\u00edka tryggt n\u00e1nast tollfrj\u00e1ls vi\u00f0skipti \u00e1 milli landanna um \u00e1rabil.<\/p>\n<p>Undanfarin misseri hafa Kanadamenn lagt aukna \u00e1herslu \u00e1 samvinnu \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga a\u00f0 auka b\u00e6\u00f0i t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 \u00feeim vettvangi og draga \u00far v\u00e6gi samstarfs til su\u00f0urs, sem hefur veri\u00f0 n\u00e1nast allsr\u00e1\u00f0andi \u00ed vi\u00f0skiptum og menningu \u00fear \u00ed landi svo lengi sem elstu menn muna. \u00deessa n\u00fdja \u00e1hersla skapar n\u00fdja m\u00f6guleika fyrir b\u00e6\u00f0i \u00edslensk og kanad\u00edsk fyrirt\u00e6ki.<\/p>\n<p>\u00cdslendingar hafa a\u00f0allega flutt sj\u00e1varafur\u00f0ir til Kanada gegnum t\u00ed\u00f0ina, en samstarfi\u00f0 ristir d\u00fdpra heldur en eing\u00f6ngu hva\u00f0 var\u00f0ar fiskmeti og n\u00e6r t.d. til v\u00e9lb\u00fana\u00f0ar, fj\u00e1rm\u00f6gnunar og fj\u00e1rfestinga, ranns\u00f3kna og skipasm\u00ed\u00f0i- og vi\u00f0halds. Sem d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 m\u00e1 nefna a\u00f0 Slippurinn \u00e1 Akureyri lauk fyrr \u00e1 \u00feessu \u00e1ri vi\u00f0 meirih\u00e1ttar endurb\u00e6tur \u00e1 frystitogaranum Saputi fr\u00e1 Qikiqtaaluk Fisheries, en \u00fea\u00f0 fyrirt\u00e6ki hefur a\u00f0setur \u00ed b\u00e6num Iqaluit, sem telst h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0ur Nunavut-sv\u00e6\u00f0isins \u00ed Kanada.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Horfa til \u00cdslands sem fyrirmyndar<\/strong><strong><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;\u201e\u00dear a\u00f0 auki hafa \u00edslensk fyrirt\u00e6ki hagsmuni af s\u00f6lu og marka\u00f0ssetningu sj\u00e1varafur\u00f0a fr\u00e1 Kanada til Evr\u00f3pu, Nor\u00f0urlandanna og til As\u00edu, \u00fear sem \u00edslensk fyrirt\u00e6ki hafa langvarandi og traust marka\u00f0stengsl,\u201c segir Hlynur.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 vitum a\u00f0 hagsmunaa\u00f0ilar \u00ed sj\u00e1var\u00fatvegi \u00ed austasta hluta Kanada, \u00fe.e. Nova Scotia, New Brunswick, Prince Edward Island, N\u00fdfundnaland og Labrador, horfa til \u00cdslands sem fyrirmyndar \u00feegar kemur a\u00f0 sj\u00e1lfvirkni \u00ed vinnslu og fulln\u00fdtingu hli\u00f0arafur\u00f0a sj\u00e1varfangs,\u201c segir Hlynur. \u201e\u00cdslenskar fj\u00e1rm\u00e1lastofnanir hafa l\u00edka \u00fej\u00f3nusta\u00f0 \u00f3tal m\u00f6rg kanad\u00edsk fyrirt\u00e6ki um \u00e1ratugaskei\u00f0 og \u00fea\u00f0 er greinilegur endurn\u00fdja\u00f0ur \u00e1hugi \u00e1 a\u00f0 efla samstarfi\u00f0 vi\u00f0 \u00edslenska banka og \u00f6nnur fyrirt\u00e6ki sem veita samb\u00e6rilega fj\u00e1rm\u00e1la\u00fej\u00f3nustu. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed margt spennandi a\u00f0 gerast hva\u00f0 var\u00f0ar aukin samskipti og samstarf \u00edslenskra og kanad\u00edskra a\u00f0ila, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 nor\u00f0ursl\u00f3\u00f0, einsog \u00feessi fer\u00f0 IDCA-sendinefndarinnar til \u00cdslands \u00ed september s\u00fdnir gl\u00f6ggt.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dear \u00e1 me\u00f0al ver\u00f0ur vi\u00f0skiptasendinefnd fr\u00e1 nor\u00f0urhluta Kanada, skipu\u00f0 fulltr\u00faum fr\u00e1 fimm af sj\u00f6 a\u00f0ildarfyrirt\u00e6kjum samtakanna Inuit Development Corporation Association (IDCA).&nbsp;Fyrirt\u00e6kin fimm eru Qikiqtaaluk Corporation, Sakku Investments Corporation, Makivvik, Nunatsiavut Group of Companies og Nunasi Corporation. \u00cd sameiningu mynda \u00feau sv\u00e6\u00f0isbundi\u00f0 eignarhaldsf\u00e9lag sem \u00e1 og st\u00fdrir margv\u00edslegum fj\u00e1rfestingum sem hafa miki\u00f0 v\u00e6gi fyrir hagkerfi\u00f0 \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":8815,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[55],"tags":[],"sponsor":[],"class_list":["post-8814","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-news-icefish-is"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8814","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8814"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8814\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8816,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8814\/revisions\/8816"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/media\/8815"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8814"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8814"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8814"},{"taxonomy":"sponsor","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/sponsor?post=8814"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}