{"id":7357,"date":"2017-09-14T12:37:07","date_gmt":"2017-09-14T11:37:07","guid":{"rendered":"https:\/\/worldfishing.nfdtesting.uk\/icefish-conference\/2017\/09\/14\/afburdamenn-i-islenskum-sjavarutvegi-heidradir\/"},"modified":"2017-09-14T12:37:07","modified_gmt":"2017-09-14T11:37:07","slug":"afburdamenn-i-islenskum-sjavarutvegi-heidradir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/news\/news-icefish-is\/afburdamenn-i-islenskum-sjavarutvegi-heidradir\/","title":{"rendered":"Afbur\u00f0amenn \u00ed \u00edslenskum sj\u00e1var\u00fatvegi hei\u00f0ra\u00f0ir"},"content":{"rendered":"<\/p>\n<p>\u00c1 me\u00f0al \u00feeirra sem hei\u00f0ra\u00f0ir voru me\u00f0 ver\u00f0launum \u00ed kv\u00f6ld eru \u00fer\u00edr lands\u00feekktir afbur\u00f0amenn \u00ed \u00edslenskum sj\u00e1var\u00fatvegi, hver \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i, \u00feeir B\u00e1r\u00f0ur Hafsteinsson, stofnandi Skipat\u00e6kni sem hanna\u00f0 hefur marga fars\u00e6lustu og endingarbestu fiskiskipa \u00edslenska flotans, Arth\u00far Bogason, fyrrum forma\u00f0ur Landssambands sm\u00e1b\u00e1taeiganda, og&nbsp;&nbsp;Gu\u00f0mundur \u00de. J\u00f3nsson, skipstj\u00f3ri Vilhelms \u00deorsteinssonar EA, einn af reyndustu og fars\u00e6lustu skipstj\u00f3rum \u00edslenska flotans.<\/p>\n<p>\u00cdslensku sj\u00e1var\u00fatvegsver\u00f0launin voru fyrst veitt \u00e1ri\u00f0 1999 til \u00feess a\u00f0 hei\u00f0ra afbur\u00f0i og vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed besta \u00e1 svi\u00f0i fiskvei\u00f0a, b\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00cdslandi og al\u00fej\u00f3\u00f0lega, og vir\u00f0ing \u00feeirra eykst st\u00f6\u00f0ugt. \u00dea\u00f0 er liti\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 sem miki\u00f0 hr\u00f3s a\u00f0 hlj\u00f3ta \u00cdslensku sj\u00e1var\u00fatvegsver\u00f0launin svo keppnin er h\u00f6r\u00f0 um \u00feessa eftirs\u00f3ttu nafnb\u00f3t til kynningar \u00e1 fyrirt\u00e6kjum og framlei\u00f0slu. \u00cdslensku sj\u00e1var\u00fatvegsver\u00f0launin hafa lengi veri\u00f0 h\u00e1punktur hverrar IceFish-s\u00fdningar.<\/p>\n<p>Ver\u00f0launin voru veitt n\u00fa \u00ed sj\u00f6unda skipti og eru \u00feau \u00ed bo\u00f0i sj\u00e1var\u00fatvegs- og landb\u00fana\u00f0arr\u00e1\u00f0uneytisins og K\u00f3pvogsb\u00e6jar. Ver\u00f0launin voru a\u00f0 \u00feessu sinni styrkt af Landsbankanum, V\u00f3nin og Bureau Veritas. D\u00f3mnefnd undir forystu Gu\u00f0j\u00f3ns Einarssonar, fyrrum ritstj\u00f3ra Fiskifr\u00e9tta, og Quentin Bates, ritstj\u00f3ra breska sj\u00e1var\u00fatvegst\u00edmaritsins World Fishing &amp; Aquaculture, valdi ver\u00f0launahafana.<\/p>\n<p><strong>Ver\u00f0launahafar \u00ed heild:<\/strong><\/p>\n<p><strong>S\u00fdningarver\u00f0laun<\/strong><\/p>\n<p><strong>Besta n\u00fdjungin \u00e1 s\u00fdningunni: <\/strong>Fiskevegn AS, Beitingarv\u00e9lin VestTek er s\u00f6g\u00f0 vera \u201et\u00fdndi hlekkurinn\u201c \u00ed l\u00ednuvei\u00f0um, mitt \u00e1 milli handf\u00e6ravei\u00f0a og st\u00f3rvirkra beitingarv\u00e9la. V\u00e9lin er sni\u00f0in a\u00f0 5000-8000 \u00f6nglum, tekur l\u00edti\u00f0 pl\u00e1ss um bor\u00f0 \u00ed skipi og er einstaklega skilvirk.<\/p>\n<p><strong>Besti s\u00fdningarb\u00e1sinn, a\u00f0 50 fm2: <\/strong>Cemre Shipyard, Tyrkneska skipasm\u00ed\u00f0ast\u00f6\u00f0 sem hefur undanfari\u00f0 sm\u00ed\u00f0a\u00f0 fj\u00f3ra togara fyrir \u00edslenskar \u00fatger\u00f0ir, \u00ferj\u00fa fyrir \u00daA og Samherja og eitt fyrir FISK Seafood eitt.<\/p>\n<p><strong>Besti s\u00fdningarb\u00e1sinn, yfir 50 fm2:&nbsp;<\/strong>Egersund Islands, Lei\u00f0andi fyrirt\u00e6ki \u00e1 svi\u00f0i s\u00f6lu, vei\u00f0arf\u00e6rager\u00f0ar og vi\u00f0ger\u00f0a \u00e1 flottrollum og n\u00f3tum.<\/p>\n<p><strong>Besti lands-, sv\u00e6\u00f0is- e\u00f0a h\u00f3pb\u00e1sinn:&nbsp;<\/strong>Danish Fish Tech Group, St\u00e6rsta fyrirt\u00e6ki \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i \u00ed Danm\u00f6rku og \u00fej\u00f3nustar \u00fatger\u00f0ir, fiskvinnslust\u00f6\u00f0var og fiskeldisst\u00f6\u00f0var um heim allan.<\/p>\n<p><strong>Starfsgreinarver\u00f0laun:<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fram\u00farskarandi \u00edslenskur skipstj\u00f3ri: <\/strong>Gu\u00f0mundur \u00de. J\u00f3nsson er einn af reyndustu og fars\u00e6lustu skipstj\u00f3rum \u00edslenska flotans. Hann hefur um \u00e1rabil veri\u00f0 skipstj\u00f3ri \u00e1 fj\u00f6lvei\u00f0iskipinu Vilhelm \u00deorsteinssyni EA sem hefur \u00e1rum saman skila\u00f0 mestu aflaver\u00f0m\u00e6ti allra \u00edslenskra fiskiskipa.<\/p>\n<p><strong>Fram\u00farskarandi \u00edslensk \u00fatger\u00f0:&nbsp;<\/strong>Rammi hf. Rammi hf. er ein af \u00f6flugustu \u00fatger\u00f0um landsins. N\u00fdr frystitogari fyrirt\u00e6kisins, S\u00f3lberg \u00d3F, sem afhentur var \u00e1 \u00feessu \u00e1ri, markar t\u00edmam\u00f3t \u00ed s\u00f6gu frystitogara\u00fatger\u00f0ar \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<p><strong>Fram\u00farskarandi \u00edslensk fiskvinnsla: <\/strong>Samherji, Samherji hf. er \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0 \u00ed t\u00e6kni\u00fer\u00f3un \u00ed fiskvinnslu \u00e1&nbsp;&nbsp;\u00cdslandi og hefur n\u00fa st\u00edgi\u00f0 enn eitt skrefi\u00f0 \u00e1 \u00feeirri braut me\u00f0 fj\u00e1rfestingu \u00ed fullkomnu h\u00e1t\u00e6knifrystih\u00fasi \u00e1 Dalv\u00edk.<\/p>\n<p><strong>Fram\u00farskarandi framlag til \u00edslensks sj\u00e1var\u00fatvegs:&nbsp;<\/strong>Arthur Bogason, Arthur Bogason var a\u00f0alhvatama\u00f0urinn a\u00f0 stofnun Landssambands sm\u00e1b\u00e1taeigenda fyrir r\u00f6skum \u00feremur \u00e1ratugum og forma\u00f0ur \u00feess allt til \u00e1rsins 2013. Me\u00f0 tilkomu landssambandsins var\u00f0 \u00f3samst\u00e6\u00f0ur h\u00f3pur trillukarla a\u00f0 \u00f6flugri st\u00e9tt sm\u00e1b\u00e1taeigenda sem s\u00f3tt hefur r\u00e9ttindi s\u00edn af festu.<\/p>\n<p><strong>Al\u00fej\u00f3\u00f0leg ver\u00f0laun<\/strong><\/p>\n<p><strong>Atorka \u00e1 sj\u00f3 \u2013 st\u00f3rfyrirt\u00e6ki me\u00f0 fleiri en 50 starfsmenn:&nbsp;<\/strong>Thybor\u00f8n Trawldoor, Fyrirt\u00e6ki\u00f0 hefur framleitt hina vel \u00feekktu bl\u00e1u toghlera \u00ed d\u00f6nsku hafnarborginni Thybor\u00f8n \u00ed h\u00e1lfa \u00f6ld. Markver\u00f0ur \u00e1rangur \u00e1 \u00feeirri vegfer\u00f0 er framlag fyrirt\u00e6kisins til \u00fer\u00f3unar \u00e1 botnv\u00f6rpuvei\u00f0um me\u00f0 botnhlerum af ger\u00f0inni 14VF sem dregnir eru ofan vi\u00f0 sj\u00e1varbotninn og s\u00ed\u00f0ar h\u00f6nnun alhli\u00f0a hlera af ger\u00f0inni Flipper og Bluestream.<\/p>\n<p><strong>Atorka \u00e1 sj\u00f3 &#8211; L\u00edti\u00f0 fyrirt\u00e6ki me\u00f0 innan vi\u00f0 50 starfsmenn:&nbsp;<\/strong>H\u00f6nnunarfyrirt\u00e6ki\u00f0 Skipas\u00fdn hefur veri\u00f0 \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 innlei\u00f0a n\u00fdjungar \u00ed skipah\u00f6nnun. N\u00fdjustu d\u00e6min um \u00fea\u00f0 eru togararnir Breki og P\u00e1ll P\u00e1lsson sem b\u00fanir eru byltingarkenndri ofurskr\u00fafu sem hefur \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r \u00e1\u00f0ur \u00f3\u00feekktan orkusparna\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Fiskvinnsla \u2013 ver\u00f0m\u00e6task\u00f6pun &#8211; St\u00f3rt fyrirt\u00e6ki me\u00f0 yfir 50 starfsmenn:&nbsp;<\/strong>Skaginn 3X er \u00ed fararbroddi \u00ed \u00fer\u00f3un margv\u00edslegra kerfa sem sn\u00faa a\u00f0 fiskvinnslu og fiskme\u00f0h\u00f6ndlun \u00e1 sj\u00f3 og landi. Me\u00f0al n\u00fdjunga m\u00e1 nefna var\u00f0veislu fisks \u00ed lestum ferskfisktogara \u00fear sem ekki er lengur \u00fe\u00f6rf fyrir \u00eds sem k\u00e6limi\u00f0il.<\/p>\n<p><strong>Fiskvinnsla \u2013 ver\u00f0m\u00e6task\u00f6pun- L\u00edti\u00f0 fyrirt\u00e6ki me\u00f0 innan vi\u00f0 50 starfsmenn:&nbsp;<\/strong>Curio hefur \u00fer\u00f3a\u00f0 margv\u00edsleg fiskvinnslut\u00e6ki, \u00feeirra \u00e1 me\u00f0al er n\u00fdjung \u00ed fl\u00f6kunart\u00e6kni sem lei\u00f0ir til aukinnar n\u00fdtingar. Fyrirt\u00e6ki\u00f0 er einnig me\u00f0 umsvif \u00e1 \u00fatflutningsm\u00f6rku\u00f0um og hefur stofna\u00f0 \u00fatib\u00fa \u00ed Bretlandi.<\/p>\n<p><strong>Snjall-ver\u00f0laun:&nbsp;<\/strong>V\u00f3nin, F\u00e6reyski vei\u00f0arf\u00e6raframlei\u00f0andinn V\u00f3nin hefur \u00fer\u00f3a\u00f0 b\u00fana\u00f0, the Flyer,&nbsp;&nbsp;sem lyftir h\u00f6fu\u00f0l\u00ednu trolls og getur \u00fev\u00ed komi\u00f0 \u00ed sta\u00f0 hef\u00f0bundinna trollk\u00falna. B\u00fana\u00f0urinn hamlar \u00feannig gegn plastmengun \u00ed sj\u00f3 og er \u00fev\u00ed umhverfisv\u00e6nn.<\/p>\n<p><strong>Framlag til \u00fer\u00f3unar flotans (skipasm\u00ed\u00f0ast\u00f6\u00f0\/h\u00f6nnu\u00f0ur\/\u00fatger\u00f0): <\/strong>Skipat\u00e6kni, \u00cdslenska skipah\u00f6nnunarfyrirt\u00e6ki\u00f0 Skipat\u00e6kni \u00e1 hei\u00f0urinn a\u00f0 byltingarkenndri h\u00f6nnun fj\u00f6gurra n\u00fdrra togara sem sm\u00ed\u00f0a\u00f0ir voru \u00ed Cemre skipasm\u00ed\u00f0ast\u00f6\u00f0inni \u00ed Tyrklandi fyrir Samherja og FISK- Seafood.<\/p>\n<p><strong>Fram\u00farskarandi framlag \u00e1 heildina s\u00e9\u00f0 (valinn \u00far h\u00f3pi ofangreindra ver\u00f0launahafa):&nbsp;<\/strong>Skipah\u00f6nnunarfyrirt\u00e6ki\u00f0 Skipat\u00e6kni og B\u00e1r\u00f0ur Hafsteinsson stofnandi \u00feess hafa komi\u00f0 a\u00f0 h\u00f6nnun margra fars\u00e6lustu og endingarbestu fiskiskipa \u00edslenska flotans. \u00der\u00f3un hans \u00e1 n\u00fdrri l\u00f6gun \u00e1 stefni fiskiskipa \u00e1 s\u00e9r \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra s\u00f6gu. Ver\u00f0launin eru veitt b\u00e6\u00f0i fyrir frumkv\u00f6\u00f0lastarf hans \u00ed skipah\u00f6nnun og langan \u00e1rangursr\u00edkan feril \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i.<\/p><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 me\u00f0al \u00feeirra sem hei\u00f0ra\u00f0ir voru me\u00f0 ver\u00f0launum \u00ed kv\u00f6ld eru \u00fer\u00edr lands\u00feekktir afbur\u00f0amenn \u00ed \u00edslenskum sj\u00e1var\u00fatvegi, hver \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i, \u00feeir B\u00e1r\u00f0ur Hafsteinsson, stofnandi Skipat\u00e6kni sem hanna\u00f0 hefur marga fars\u00e6lustu og endingarbestu fiskiskipa \u00edslenska flotans, Arth\u00far Bogason, fyrrum forma\u00f0ur Landssambands sm\u00e1b\u00e1taeiganda, og&nbsp;&nbsp;Gu\u00f0mundur \u00de. J\u00f3nsson, skipstj\u00f3ri Vilhelms \u00deorsteinssonar EA, einn af reyndustu og fars\u00e6lustu skipstj\u00f3rum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[55],"tags":[],"sponsor":[],"class_list":["post-7357","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-news-icefish-is"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7357","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7357"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7357\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7357"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7357"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7357"},{"taxonomy":"sponsor","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.worldfishing.net\/icefish-conference\/wp-json\/wp\/v2\/sponsor?post=7357"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}